Fréttir
  Dagskrá
  Easterweek schedule
  Opnunartími sundlauga
  Skíðavikan
  Tenglar
  Myndasafn
  Myndir 2007
  Aðstaða
  Hvað er skíðavikan
  Samgöngur og gisting
  Hafa samband - Póstur
  Aldrei fór ég suður
 
 
 
 Fréttir og tilkynningar
|fimmtudagur 8. apríl 2010|
Flott Skíðavika að baki
Þá er skíðavikan að baki. Ísfirðingar þakka öllum þeim sem heimsóttu þá fyrir komuna. Þá þakka aðstendur öllum þeim sem komu að skipulagningunni og voru með uppákomu fyrir sitt framlag.

|miðvikudagur 7. apríl 2010|
Úrslit úr skíðaskotfimi
Keppt var í skíðaskotfimi á skírdag. Í karlaflokki sigraði Einar Ágúst Yngvason annar varð Jón Ottó Gunnarsson og þriðji Einar Birkir Sveinbjörnsson. Í Kvennaflokki sigraði Guðbjörg Rós Sigurðardóttir, önnur var Stella Hjaltadóttir og Jóhanna Oddsdóttir varð þriðja. Tuttugu og tveir tóku þátt.


|þriðjudagur 6. apríl 2010|
Big Jump meistari
Það var Elfar Ingi Sigurðsson sem var Big Jump meistari þetta árið. Elfar keppti á skíðum (trick skíðum) og sýndi snildar takta.

|mánudagur 5. apríl 2010|
Garpar 2010
Árlegt garpamót á skíðum fór fram í gær. Það er Mjólkurstöðin á Ísafirði sem styrkir mótið ár hvert. Keppt var bæði í alpagreinum og göngu. Úrslit urðu eftirfarandi:
Alpagreinar kvk
1. Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir
2. Helga Aðalsteinsdóttir
Alpagreinar kk
1. Jóhann Haukur Hafsteinn
2. Þorlákur Baxter
3. Sölvi Sólbergsson
Ganga
1. Sigurjón Sigurjónsson
2. Kristinn Halldórsson

|laugardagur 3. apríl 2010|
Fallegur dagur framundan
Í dag laugardaginn 3. apríl er fallegt veður og því ættu engar breytingar að verða á dagskrá. Páskaeggjamót yngstu kynslóðarinnar verður á dölunum tveimur kl. 13:00. Þá er líklegt að flugvélin með nammi regnið láti sjá sig upp úr hádegi.

Ýmislegt er að gerast í bænum í allan dag svo sem fjölskydu bingó, leikjadagur fyrir börn í íþróttahúsinu á Þingeyri, blakmót, sýningar og margt fleira. Þá verður rokkhátíðinni haldið áfram í kvöld ...
Meira »

|föstudagur 2. apríl 2010|
Flottur dagur í Tungudal með nægum snjó
Töluverð snjókoma var í Tungudal í dag svo mikil að ekki var hægt að fljúga með karamellurnar. Reynt verður að fljúga með karamellurnar einhvern næstu daga ef veður leyfir. Einhverjum karamellum var þó kastað í dag og tónlist og stemming var í Tungudal.

|föstudagur 2. apríl 2010|
Furðufatadagur í Tungudal
Í dag föstudaginn langa er furðufatadagur í Tungudal. Fólk er hvatt til að mæta klætt búningum. SFÍ kveikir upp í grillinu um hádegi og Benni Sig og Halldór Smára spila frá kl. 13. Ef veður leyfir mun svo karamellum rigna af himni ofan.

|fimmtudagur 1. apríl 2010|
Brekkubrun í Bæjarbrekkunni
Þá er allt að verða klárt fyrir brekkubrunið í Bæjarbrekkunni. Verið er að moka snjó í brekkuna og mun fjörið hefjast kl. 18. Ísfirðingafélagið verður með heitt kakó í Sóltúni svo þetta verður bara gaman.

|miðvikudagur 31. mars 2010|
Boarder Cross mót fyrir börn í Tungudal aflýst
Þar sem mikinn snjó þarf til að hægt sé að gera Boarder Cross braut hefur verið ákveðið að aflýsa keppninni þar sem ekki er nægur snjór til staðar.

|miðvikudagur 31. mars 2010|
Búið að færa Big Jump mótið
Big Jump snjóbrettamótið verður haldið í Tungudal á skírdag kl. 20. Mótið verður við skíðaskálann svo auðvelt verður að komast að til að horfa. Keppendur eru beðnir að mæta kl. 19:30 ef þeir vilja taka æfingastökk því keppnin sjálf mun byrja kl. 20.

» Eldra efni «
Hafa samband - Senda inn efni