Fréttir
  Dagskrá
  Easterweek schedule
  Opnunartími sundlauga
  Skíðavikan
  Tenglar
  Myndasafn
  Myndir 2007
  Aðstaða
  Hvað er skíðavikan
  Samgöngur og gisting
  Hafa samband - Póstur
  Aldrei fór ég suður
 
 
 
 Hvað er Skíðavikan?
Smelltu á myndina til að skoða stærri mynd!
Ólafur Th Árnason, Íslandsmeistari á gönguskíðum sýnir að hann kann líka að skíða í brekkunum.
Skíðavikan á Ísafirði á sér 75 ára sögu en hún var fyrst haldin um páska árið 1935 og hefur Skíðavikan verið snar þáttur í menningarlífi Ísfirðinga frá þeim tíma er gestir sigldu til Ísafjarðar með farþegaskipinu Súðinni og seinna Gullfossi til að taka þátt í veglegum hátíðahöldum.
Fjöldi gesta leggur árlega leið sína vestur um páska og er oft haft á orði að íbúafjöldi Ísafjarðar tvöfaldist í dymbilvikunni. Úrval listamanna, jafnt ísfirskir sem aðkomnir, hafa troðið upp á Skíðaviku í gegnum tíðina og eiga margir sinn fasta sess í dagskrá vikunnar.
Það hefur alltaf verið markmið Skíðavikunnar að vera með sem fjölbreyttasta dagskrá og miðast hún síður en svo við áhuga á skíðaíþróttinni. Enda hefur það sýnt sig að gestir hátíðarinnar koma allstaðar að og er sama hvort um sé að ræða partíglöð ungmenni og nátthrafna, miðaldra brottflutta Ísfirðinga, útivistarfólk eða krakka með páskaeggjadellu.
Lengst af einskorðaðist Skíðavikan við Ísafjörð en með bættum samgöngum hefur dagskráin teygt anga sína út til nágrannabyggðarlaga Ísafjarðar síðustu ár með góðum árangri og nær hún nú til Dýrafjarðar, Önundarfjarðar og Súgandafjarðar auk Bolungarvíkur.
Stærstur hluti dagskrárinnar fer fram á ágætu skíðasvæði Ísfirðinga í Dölunum tveimur, Tungudal og Seljalandsdal. Á kvöldin skemmta landsfrægar hljómsveitir og tónlistarfólk á veitingastöðum bæjarins og fjölmargir aðrir menningarviðburðir prýða dagskrána, jafnt veraldlegir sem trúarlegs eðlis.
Hafa samband - Senda inn efni