Fréttir
  Dagskrá
  Easterweek schedule
  Opnunartími sundlauga
  Skíðavikan
  Tenglar
  Myndasafn
  Myndir 2007
  Aðstaða
  Hvað er skíðavikan
  Samgöngur og gisting
  Hafa samband - Póstur
  Aldrei fór ég suður
 
 
 
 Aðstaða skíðamanna
Tungudalur - brekkur við allra hæfi!

Lyftur:
Mikil endurskipulagning hefur átt sér stað á skíðasvæðinu undanfarin ár. Þrjár afkastamiklar lyftur frá Leitner eru í Tungudal og er sú lengsta 960 metrar. Öllum öryggiskröfum er framfylgt og stöðugt eftirlit er með því að lyftumannvirki sinni hlutverki sínu sem best.

Skáli:
Nýleg og glæsileg skíðamiðstöð er í Tungudal. Vélageymsla er á jarðhæð og veitingasala og gistiaðstaða á þeirri efri. Á efri hæðinni er skíða- og snjóbrettaleiga einnig til húsa.

Brekkur:
Á skíðasvæðinu í Tungudal eru fjölbreyttar brekkur við allra hæfi. Í dalbotninum er barnalyfta fyrir þá sem eru að taka fyrstu beygjurnar. Beint fram af Sandfellinu eru mjúkir en brattir hjallar sem aðeins eru troðnir að hluta, þannig að auðvelt er að skíða utanbrautar. Innar í dalnum við Hauganeslyftuna, eru mýkri brekkur fyrir alla sem ekki vilja taka mikla áhættu en finnst samt ekki gaman að ýta sér niður brekkurnar. Frá enda lyftunnar er upplagt að skella skíðunum á bakið og rölta upp á Miðfellið og njóta útsýnisins þaðan. Í vestanverðu Miðfellinu er brött og skemmtileg brekka. Frá enda Hauganeslyftunnar eru mjúkar brekkur niður dalbotninn sem eru upplagðar fyrir fjölskyldunna.

Snjóbretti:
Snjóbrettin eru að sjálfsögðu ekki skilin útundan. Af aðstæður leyfa búa starfsmenn til stökkpalla, bordercross brautir og fleira til að stytta brettaköppum stundir. Þá hafa ótroðnar brekkur Sandfellslyftunnar verið vinsælar hjá snjóbrettafólki.

Lýsing:
Í Tungudal er kominn öflug lýsing sem gerir opnun mögulega á kvöldin.

Troðarar
Tveir kraftmiklir troðarar af Leitner gerð halda svæðinu í ágætis formi. Þá splunkunýr og öflugur troðari af gerðinni Kassbohrir á svæðinu. Mikill metnaður er lagður í að troða brekkur vel og passa upp á að ruðningar myndist ekki í brekkunum. Hefur svæðið oft fengið góð meðmæli frá þjálfurum viðsvegar að, fyrir vel unnar brekkur fyrir almenning og keppnisfólk.


Seljalandsdalur - sælustaður gönguskíðamanna!
Á Seljalandsdal eru troðnir 5 km. og 10 km. hringir. Brautirnar voru lagaðar mikið sumarið 2001 og er nú í toppstandi. Frá Seljalandsdal liggja vegir til allra átta þó ekki sé allstaðar troðnar brautir. Auðvelt er að fara þaðan yfir á Breiðadalsheiði og þaðan niður í Engidal. Einnig má fara uppá Kistufell og niður í Hnífsdal eða yfir til Bolungarvíkur.
Í Tungudal er troðinn 5 km. hringur á golfvellinum og um skógræktina þegar snjóalög leyfa.

Lýsing:
Fullkomin lýsing er á svæðinu á Seljalandsdal. Skíðamenn kveikja sjálfir á brautarlýsingunni og er rofinn utan á skíðaskálanum. Síðasti maður muni að slökkva ljósin!

Skálinn:
Sumarið 2001 var gamli skálinn úr Tungudal fluttur upp á Seljalandsdal og settur niður við endamark keppnisbrautanna er nú loksins kominn varanleg aðstaða fyrir gönguskíðafólk; hvort sem það eru keppnismenn eða almenningur. Í skálanum eru seldar léttar veitingar um helgar þegar mót eru í gangi, þar er aðstaða til mótashalds og stærðar sólpallur gefur kost á að sötra kakó úti á fögrum degi meðan þreytan líður úr manni.
Hafa samband - Senda inn efni