|
|miðvikudagur 31. mars 2010|
|
|
Setningin kl. 16:30 - Skrúðgangan fer frá kirkjunni kl. 16:00
|
|
Setning Skíðavikunnar 2010 verður á Silfurtorginu kl. 16:30 í dag. Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar mun marsera með skíðafólki og öðrum gestum frá Ísafjarðarkirkju kl. 16 og leika nokkur lög fyrir setninguna. Eftir setningu fer svo fram sprettganga Núps í Hafnarstrætinu. Fólk er hvatt til að mæta við kirkjuna og taka þátt í skrúðgöngunni. |
|
|
|miðvikudagur 31. mars 2010|
|
|
Skíðasvæðið opið
|
|
Í dag verður barnalyftan opin frá kl. 10-17 en beðið verður með opnun í hinum lyftunum þar til á morgun. Æfingakrakkar munu þó skíða í Miðfellinu í dag en vegna vinnu í Sandfellslyftunni verður ekki opið fyrir almenning á efri svæðunum í dag. Göngu svæðið er svo að sjálfsögðu opið. |
|
|
|þriðjudagur 30. mars 2010|
|
|
Opnun í Tungudal miðvikudaginn 31. mars
|
|
Örlítil breyting er á auglýstri opnun á skíðasvæðinu í Tungudal á morgun miðvikudag. Barnasvæðið opnar strax kl. 10 í fyrramálið eins og auglýst hefur verið en efri svæðin opna eftir hádegi. Fylgist vel með á símsvara skíðasvæðisins 878 1011. |
|
|
|þriðjudagur 30. mars 2010|
|
|
Skíðaskotfimin færð
|
Til stóð að hafa skíðaskotfimina á Seljalandsdal við gömlu Skíðheima eins og undanfarin ár en vegna snjóleysis þarf að flytja hana. Af öryggisástæðum er ekki hægt að hafa hana við gönguskálann þó þar sé nægur snjór til að fara á gönguskíði.
Mótið verður því haldið á skotsvæði Skotfélagsins á Dagverðardal og hefst kl. 13 en hægt verður að koma frá kl. 11 að prufa riflana.
|
|
|
|mánudagur 29. mars 2010|
|
|
Á skíðum skemmti ég mér tralala......................
|
|
Ágætu skíðavikugestir ég hvet þá sem koma langt að að muna eftir skíðunum sínum. Gögusvæðið er í ágætis standi og er alpasvæðið að detta inn. Æfingakrakkar reyndu það í dag og lítur það bara ágætlega út. Verið er að vinna nótt og dag við að koma öllum lyftum og lágmarks brekkum í gagnið fyrir setningu Skíðavikunnar. |
|
|
|föstudagur 26. mars 2010|
|
|
Enn bætist við dagskránna
|
Endilega skoðið dagskránna reglulega þar sem alltaf er að bætast við hana. Tvær nýjustu viðbæturnar eru minningarmót í körfubolta og pókermót.
Fimmtudagur 1 apríl 2010
Kl. 14:00 – 15:30
Minningarleikur í körfuknattleik
Minningarsjóður Þóreyjar Guðmundsdóttur stendur fyrir minningarleik um Þóreyju á milli núverandi leikmanna KFÍ í kvennaflokki gegn eldri og fyrrverandi leikmönnum KFÍ í kvennaflokki sem léku með ...
|
| Meira » |
|
|
|miðvikudagur 24. mars 2010|
|
|
Skíðafréttir
|
|
Nú þegar vika er í Skíðaviku eru margir að velta fyrir sér skíðafæri á Ísafirði. Göngusvæði er opið og geta ungir sem aldnir skellt sér á gönguskíði. Svæði alpamanna í Tungudalnum er aðeins daprara en nokkuð öruggt er að barnasvæðið verði opið og reyna á að opna aðrar lyftur, það skýrist hinsvegar á næstu dögum. |
|
|
|þriðjudagur 23. mars 2010|
|
|
Nýr gistimöguleiki á Suðureyri
|
Gistiheimilið 66 að Túngötu 2 á Suðureyri er nýr valmöguleiki í gistingu.
Hægt er að hafa samband í netfangið gisting@66guesthouse.is eða í síma 845 1300.
|
|
|
|fimmtudagur 18. mars 2010|
|
|
Tvær vikur í Skíðaviku
|
|
Nú eru tvær vikur í að Skíðavikan 2010 hefjist. Oft hefur verið meiri snjór á Ísafirði en allt bendir til þess að hægt verði að skíða í barnabrekkunni en aðrar brekkur í Tungudal er spurning með. Á Seljalandsdal er enn hægt að fara á gönguskíði og þar er frábært útsýni og notalegt að ganga. Það þarf hinsvegar að fá eina stóra sendingu af snjó svo allir geti fundið brekkur við hæfi. Það má þó ekki gleyma því að mikil og góð dagskrá verður á Skíðav ...
|
| Meira » |
|
|
|fimmtudagur 18. mars 2010|
|
|
Dagskrá skíðavikunnar 2010 komin á netið á ensku
|
|
Nú er búið að setja dagskrá skíðavikunnar á ensku inn á síðuna og er að finna flipa hér til vinstri. |
|