Back to All Events
Vegalengdir: 70 km og 35 km
Aðferð: Frjáls (troðið fyrir báðar aðferðir)
Rástími: 5. apríl kl. 22:00
Fyrirkomulag: Parakeppni. Liðsfélagar fylgjast að alla gönguna.
Keppni hefst á Seljalandsdal klukkan 22. Þetta er parakeppni þar sem tveir keppa saman og skylda er að ganga saman allan tímann. Lokatími parsins er lokatími þess sem seinna kemur í mark. Slökkt verður á ljósunum og því þurfa keppendur að vera með höfuðljós. Allir að mæta með sinn eigin mat og drykk – og auðvitað góða keppnisskapið.