Back to All Events
Við færum húllumhæið af Seljalandsdal niður í blíðuna í Tunguskógi.
Páskaeggjamót HG, grillaðar pylsur af Skíðafélagi Ísfirðinga, karamelluregn, DJ og endalaus gleði.
Allir krakkar fæddir 2012 og síðar geta tekið þátt í þrautabrautum. Páskaegg að launum fyrir þá sem klára!
Frábær skemmtun og verður enn skemmtilegri þegar allir mæta í búningum.
Það verður grillað á milli 11:30 og 13:00 og einhvertímann yfir daginn mun karamellum rigna yfir svæðið.
Bílastæði verða við Gólfskálann og hægt að renna sér niður þaðan að þjónustuhúsinu á tjaldsvæðinu.
Einnig verður lagt spor frá Bónus að þjónustuhúsinu á tjaldsvæðinu.
https://www.facebook.com/events/s/fur%C3%B0ufatadagur-i-tunguskogi/297813990013038/