Back to All Events
Tveggja daga skútuferð í Skíðaviku. Siglt frá Ísafirði kl. 9 á Skírdag yfir Ísafjarðardjúp í Jökulfirðina (3-4 tíma sigling). Þar verður leikið sér eins og hverjum hentar, hægt að fara á fjallaskíði, snjóþrúgur, kayak eða paddle board en líka hægt að tína krækling, taka myndir, lesa og slaka á um borð. Um kvöldið verður kvöldvaka að hætti Óla og Ingu og gist um borð. Meira sprell um morguninn og siglt til baka til Ísafjarðar eftir hádegi.
Verð: 70.000kr á mann.
Innifalið: sigling og gisting á seglskútunni Auroru, áhöfn og fararstjórn, allur matur, kayakar og SUP.
Fyrir frekari upplýsingar. https://aurora-arktika.com/adventure/paskar-a-skutu/
Fyrir bókanir: info@aurora-arktika.com