Back to All Events
Í tilefni af 20 ára afmæli tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður verða til sýnis í Safnahúsinu á Ísafirði ljósmyndir frá fyrstu hátíðinni árið 2004. Einnig verða sýndar ljósmyndir Harðar Sveinssonar sem settar voru upp á sýningu árið 2017 undir heitinu Með linsu gestsins.