Back to All Events

Gönguskíðaferð frá Aðalvík til Hesteyrar

  • Vesturferðir 7 Aðalstræti Ísafjörður Iceland (map)

Vesturferðir bjóða upp á gönguskíðaferð frá Aðalvík til Hesteyrar á skírdag.

Áætlað er að fara frá Ísafirði með bát til Aðalvíkur snemma morguns. Gestum og búnaði verður komið í land í Aðalvík með tuðrubát og þaðan haldið yfir heiðina til Hesteyrar. Leiðin er 13-14km og hækkuninn ca 350m.

Báturinn bíður hópsins á Hesteyri og verður farið til baka til Ísafjarðar eftir að allir hafa gætt sér á heitum drykki um borð. Hægt er að geyma aukaföt um borð í bátnum meðan gengið er.

Forsenda þátttöku er að hafa reynslu af göngu á skiðum utan brautar.

Bóka pláss

Previous
Previous
April 2

Píslarganga um Dýrafjörð

Next
Next
April 2

Kirkjuganga í Önundarfirði