Back to All Events
Vesturferðir bjóða upp á gönguskíðaferð frá Aðalvík til Hesteyrar laugardag fyrir páska.
Áætlað er að fara frá Ísafirði með bát til Aðalvíkur snemma morguns. Gestum og búnaði verður komið í land í Aðalvík með tuðrubát og þaðan haldið yfir heiðina til Hesteyrar. Leiðin er 13-14km og hækkunin um 350m.
Báturinn bíður hópsins á Hesteyri og verður farið til baka til Ísafjarðar eftir að allir hafa gætt sér á heitum drykki um borð. Hægt er að geyma aukaföt um borð í bátnum meðan gengið er.
Forsenda þátttöku er að hafa reynslu af göngu á skíðum utan brautar.