Back to All Events
Laugardaginn 3. apríl opnar sýningin ,,Perhaps maybe’’ með verkum Arnars Ásgeirssonar í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Arnar Ásgeirsson vinnur með skúlptúr, teikningar, hljóð og videó. Í verkum sínum skoðar hann hugmyndir um uppruna og þróun hinna ýmsu sköpunarverka og náttúrufyrirbæra. Verkin eru oft einskonar endurgerðir sem reyna að setja hlutina í nýtt samhengi og breyta jafnvel um notagildi. Boðið verður uppá léttar veitingar. Allir velkomnir.