Back to All Events

Tíra - Bjargey Ólafsdóttir sýnir í Listasafni Ísafjarðar

Bjargey Ólafsdóttir sýnir ljósmyndaseríu sem hún nefnir Tíra, í Listasafni Ísafjarðar, Safnahúsinu, Ísafirði. Tíra var unnin í vinnustofudvöl í Skaftfelli, Seyðisfirði sumarið 2008 og var fyrst sýnd í Ljósmyndasafni Reykjavíkur árið 2009 og síðar í Bronx River Art Center í New York og XYZ í Tokyo. Í kjölfarið var Tíra tilnefnd til tveggja alþjóðlegra ljósmyndaverðlauna: Deutsche Börse Photography Prize og The Godowsky Colour Photography Award. Tíra var sýnd í Skaftfelli, Seyðisfirði og í Þórsmörk í Neskaupsstað í fyrrasumar og er nú til sýnis á Ísafirði.

Previous
Previous
April 3

Páskabröns í Víkurskálanum

Next
Next
April 3

Siglum seglum þöndum