Back to All Events

TRUE COLOURS í Gamla sjúkrahúsinu

  • Gamla sjúkrahúsið Túngata Ísafjörður Iceland (map)

TRUE COLOURS - Litadýrð í öðru ljósi

Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir listljósmyndari og kvikmyndatökumaður búsett í Osló sýnir verk sín í Gamla Sjúkrahúsinu á Ísafirði dagana 13.-30. apríl. TRUE COLOURS er hluti af meistaraverkefni Jónínu í Fine Arts in Film við Den Norske Filmskolen. Árið 2021 vann hún verðlaun og viðurkenningu fyrir tvær myndir úr sýningu TRUE COLOURS í alþjóðlegu ljósmyndakeppninni The International Photography Awards ™ (IPA). Jónína sérhæfir sig í sjónrænni hönnun og leggur áherslu á samspil ljóss og lita í verkum sínum. Með infrarauðri ljósmyndavél dregur Jónína fram litadýrð sem sýnir heiminn í öðru ljósi. Opnun sýningar er kl.12:30 miðvikudaginn 13. apríl. Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma safnsins.

Previous
Previous
April 16

Vestfirskur markaður í Dokkunni

Next
Next
April 16

Bryggjutónleikar 66°Norður og AFÉS