Back to All Events

TRUE COLOURS í Gamla sjúkrahúsinu

  • Gamla sjúkrahúsið Túngata Ísafjörður Iceland (map)

TRUE COLOURS - Litadýrð í öðru ljósi - sýningin opnar klukkan 12:30 og er opin til kl. 18.

Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir listljósmyndari og kvikmyndatökumaður búsett í Osló sýnir verk sín í Gamla Sjúkrahúsinu á Ísafirði dagana 13.-30. apríl. TRUE COLOURS er hluti af meistaraverkefni Jónínu í Fine Arts in Film við Den Norske Filmskolen. Árið 2021 vann hún verðlaun og viðurkenningu fyrir tvær myndir úr sýningu TRUE COLOURS í alþjóðlegu ljósmyndakeppninni The International Photography Awards ™ (IPA). Jónína sérhæfir sig í sjónrænni hönnun og leggur áherslu á samspil ljóss og lita í verkum sínum. Með infrarauðri ljósmyndavél dregur Jónína fram litadýrð sem sýnir heiminn í öðru ljósi.

Previous
Previous
April 13

Sprettganga Aurora Arktika í Hafnarstræti

Next
Next
April 13

Kyrrðar- og slökunarflæði með Imbu